Vilhelm.is

Writer in training…

17/06/11

Dansinn dunaði og kenndi mér að forgangsraða

by @ 08:23. Filed under Muml og ruml

Ég er ekki þekktur fyrir að láta lærdóminn hanga á spýtunni, en ég lét verða af því í síðustu viku þegar ég sýndi ásamt hópi góðs fólks skoskan dans á hátíð sem ég hef hjálpað til við að setja upp undanfarin þrjú ár. Skoskur dans er að vísu ekki það eina sem við sýnum, í ár sýndum viðp meðal annars rosalega krúttlegan taívanskan dans, kynþokkafullan dans frá Tahítí, hressan dans að hætti Bollywood og svo soran dans sem kemur upprunalega frá Hokkaido.

Vikuna fyrir sýninguna þá var alltaf eitthvað að gerast – ef það var ekki æfing þá var það einhver undirbúningsvinna. Þar sem ég var með mikilvæga kynningu mánudaginn eftir þurfti ég að forgangsraða hlutina. Vildi ég taka sýninguna fram yfir hugsanlega lokaeinkunn? Eða átti ég að slá til og eiga hættu á því að fá lægri einkunn fyrir hálfkláraða kynningu? Ég fór að hugsa…

Ég komst að þeirri niðurstöðu að ef ég þarf að velja á milli þess að gera skólaverkefni eða fullkomna sýningu sem sett er upp af hundruðum nemenda sem kynnast hvorum öðrum og tengjast sterkum böndum í kjölfarið. Ég hef kynnst fjöldan öllum af góðu fólki þessu rúmu 3 ár sem ég hef verið í þessum klúbbi mínum og get ekki sagt að ég sjái eftir öllum þeim stundum sem ég hef eytt á æfingum og fundum með þessu liði.

Sýningin tókst afar vel, hátt í 800 gestir mættu á svæðið, fáir dansarar gerðu mistök og minn dans heppnaðist alveg ótrúlega. Eftir sýninguna var svo farið með liðið út að drekka þar sem tilfinningarnar flæddu yfir alla og tár voru felld í lítratali. Leiðtogi liðsins míns og varaleiðtoginn fengu gjafir… og ég líka, sem ég var ótrúlega hissa á, því ég gerði lítið annað en að reyna að kenna fólki dansinn. Ég get ekki annað sagt en að ég hlakki til að endurtaka leikinn á næstu önn.

Ég held að ég hafi áttað mig of seint á því að það er mun mikilvægara að kynnast góðu fólki en eltast við háar einkunnir. Ég veit að minnsta kosti hvernig ég mun forgangsraða hlutina fram að útskrift.

Myndin hér að neðan er af Andrew og Jess, stoðum og styttum skoska dansins.

02/06/11

VVVVVV – Leikjarýni

by @ 08:25. Filed under Muml og ruml

Þar sem ég get ekki séð mér fært að skrifa leikjarýnir á GameOver.is vegna hagsmunaárekstra í tengslum við vinnuveitanda minn verð ég að hætta að skrifa gagnrýni þar. Aftur á móti vil ég áfram segja mína skoðun á hlutunum og hef ég því ákveðið að birta leikjarýnir á einkasíðu minni.

Í tilefni þess að VVVVVV er á hálfvirði á Steam í dag langar mig að ræða aðeins um þennan frábæra leik. VVVVVV er platformer sem byggður er í flash af hinum írska Terry Cavanagh og skartar tónlist eftir sænska chiptune tónlistarmanninn Magnus Pålsson. Leikurinn hefst á því að geimskip sem stjórnað er af Viridian kafteini lendir í víddartruflunum og neyðist áhöfnin til þess að yfirgefa það í kjölfarið. Því miður fer eitthvað úrskeiðis, áhöfnin tvístrast og kafteinn Viridian þarf því að leita þá uppi, einn af öðrum, inni í óstöðugri vídd sem gæti hvað úr hverju orðið að engu.

Það er ekki oft sem maður rekst á leik sem maður hefur lítið heyrt um og grípur mann jafn hressilega og VVVVVV. Hvort sem það er 8 bita grafíkin, chiptune tónlistin, opna kortið sem leyfir manni að taka á þrautum leiksins í þeirri röð sem maður vill, eða þá hátt en fyrirgefanlegt erfiðleikastigið, þá er þetta leikur sem enginn ætti að missa af.

Leikurinn er uppfullur af dauðagildrum sem maður þarf að komast fram hjá með því að stjórna þyngdaraflinu. Oft á tíðum þarf maður að vera hárnákvæmur til þess að komast hjá því að lenda á göddum eða öðrum oddhvössum hlutum og jafnvel reyndustu menn gætu átt í erfiðleikum með sum borðin. Þrátt fyrir hátt erfiðleikastig þarf þó ekki að óttast – það er ekki hægt að vera “Game Over” og yfirleitt er C standur á hverjum skjá, en þar mun Viridian kafteinn lifna við ef örlögin fara illa með hann.

Fyrir utan grunnsöguna eru einnig tuttugu “skínandi hlutir” til þess að safna og það getur verið ansi stressandi raun að ná sumum þeirra. Það tók mig á bilinu tvær til þrjár klukkustundir að klára leikinn og þá átti ég eftir að ná í það minnsta helmingnum af þessum aukahlutum. Það er hægt að vista á nokkrum stöðum í leiknum fyrir þá sem vilja frekar spila í stuttum hollum, en þar sem leikurinn geymir vistaða leiki í flash möppunni mæli ég gegn því að eyða flash cacheinu. Þó er líklegast að fólk klári hann í einni eða tveimur setum, enda á hann auðvelt með að grípa mann.

Tónlist og leikhljóð henda manni í heim tölvuleikja 9. áratugarins og getur vakið upp ýmsar kenndir hjá þeim sem ólust upp við að spila leiki á Nintendo Entertainment System. Magnus Pålsson (aka SoulEye) tekst á undaverðan hátt að komast inn í hóp chiptune guða minna því fáir leikir skarta eins ávanabindandi tónlist og VVVVVV. Þess má geta að tónlistin er til sölu á vef Pålsson, souleye.se.

VVVVVV er það sem ég vil kalla “instant classic,” stuttur en góður. Það eru ekki oft sem svona fáránlega góðir leikir koma út á budget verði og verðskuldar hann alla $5 dollarana sem hann kostar. Ef þú kaupir hann Í DAG kostar hann ekki nema $2.5 á Steam, eins og ég nefndi hér að ofan.

Ekki enn sannfærð(ur)? Prófaðu demóið.

Minn dómur: Kaupt’ann.

08/04/11

Að leita að vinnu í Japan

by @ 06:54. Filed under Muml og ruml

Fyrir þá sem ekki hafa verið að fylgjast með mér á Facebook hefur mér tekist að finna mér vinnu. Þetta væri ekki í frásögur færandi ef það væri ekki sjúklega erfitt að finna vinnu í Japan og ef það væri ekki heilt ár í það að ég byrji að vinna. Í þessum stutta pistli ætla ég að fara yfir helstu skrefin sem háskólanemar í Japan þurfa að taka frá því þeir byrja að leita sér að vinnu og þangað til þeir fá atvinnutilboð.

Atvinnuleitin hefst óformlega þegar þriðja námsár (af fjórum) er um það bil hálfnað. Þá byrjar fólk að hugsa um hvað það vill gera í framtíðinni, hvað þau hafa áhuga á, hvernig starf hentar þeim og hjá hvaða fyrirtækjum það vill sækja um. Í því felst m.a. að sálgreina sjálfan sig, finna sína veikleika og sterkleika, til þess að nota sér í hag í atvinnuumsóknum og síðar meir viðtölum.

Í kringum 1. október opna mörg fyrirtæki fyrir forskráningu, annaðhvort í gegnum sína eigin vefsíðu eða þá í gegnum eina af nokkrum síðum þar sem fjöldinn allur af fyrirtækjum er skráður. Í gegnum þessar síður fá nemendur svo upplýsingar um kynningarfundi, námskeið (t.d. í sjálfsgreiningu, viðtalstækni etc.), auk þess sem mörg fyrirtæki nota þær til þess að hafa samband við fólk í gegnum ráðningarferlið. Fólk innan mannauðsdeildar fyrirtækja fer einnig oft í heimsóknir í háskóla og halda kynningarfundi fyrir nemendur og stundum eru þessir kynningarfundir eingöngu fyrir nemendur ákveðinna deilda. Svo var tilfellið hjá fyrirtækinu sem ég mun enda hjá, en ég kynnti mig fyrir starfsmanni fyrirtækisins að fundinum loknum og endaði það svo með því að ég fékk tölvupóst daginn eftir þar sem mér var boðið í viðtal.

Í næsta skrefi, sjálfri umsókninni, fer að sjást mikill munur á milli fyrirtækja. Einhver fyrirtæki kjósa þess að fólk sendi inn námsferilskrá sína, sum vilja að fólk sendi inn umsóknir í gegnum netið (þá oftast í gegnum sínar eigin vefsíður) og fjölmörg vilja að fólk handskrifi umsóknir sínar og sendi þær með pósti. Í öllum tilfellum þarf fólk ekki bara að skrifa upp staðreyndir eins og hvað og hvar það er að læra, heldur þarf það líka að skrifa texta, stutta eða langa, um styrkleika sína (stundum veikleika), ástæður fyrir því af hverju það er að sækja um hjá fyrirtækinu (þar er sterkur leikur að nefna eitthvað sem fyrirtækið hefur fram yfir keppinauta sína), hvað það vill gera hjá fyrirtækinu í framtíðinni og oft þarf fólk líka að skrifa upp stutta frásögn af einhverju, eins og t.d. um erfiðleika sem viðkomandi komst yfir í klúbbum eða hlutastörfum með hjálp klúbbmeðlima/samstarfsmanna.

Til gamans má geta að ég sendi uppskrifaða umsókn til fyrirtækisins sem ég fékk á endanum vinnu hjá og vissulega hefur hún haft áhrif, en ég sendi hana eftir að dagsetning fyrir mitt fyrsta viðtal var tekið, enda var viðtalsdagsetningin ákveðin eftir kynningarfund fyrirtækisins.

Ef fólk kemst í gegnum skriflega umsókn er fólk yfirleitt kallað í próf þar sem rökhugsun, stærðfræðikunnátta og móðurmálskunnátta er könnuð í þaula, ásamt öðru. Sum fyrirtæki hafa reyndar engin próf, sum fyrirtæki hafa bara persónuleikapróf, en hjá þeim fyrirtækjum þar sem umsækjendur skipta þúsundum eða tugum þúsunda eru oftast próf sem reyna á þá hæfileika sem ég benti á hér að ofan. Ég fór sjálfur bara í persónuleikapróf, sama dag og ég fór í annað viðtalið.

Á eftir skriflegum prófum koma oft hópumræður. Þau eru frábrugðin viðtölum að því leiti að viðmælendur manns eru aðrir umsækjendur, á meðan starfsfólk fyrirtækisins fylgist með. Þar er fólki, allt að 100 manns, skipt niður í hópa. Ákveðinn tími er gefinn til þess að ræða ákveðið umræðuefni og að þeim loknum heldur hver hópur stutta kynningu á niðurstöðum umræðna sinna.

Á eftir skriflegri umsókn/prófi/hópumræðum koma svo viðtöl. Yfirleitt eru þau fleiri en eitt og eru til dæmi um að fólk þurfi að fara í 10 viðtöl áður en það fær atvinnutilboð. Það hlýtur að vera sjokkerandi að detta út eftir áttunda viðtalið sitt! Eftir því sem fólk fer upp um viðtalastigan verða viðmælendur enn háttsettari aðilar innan fyrirtækisins og síðasta viðtalið er yfirleitt tekið af yfirmanni mannauðsdeildarinnar ásamt einhverjum stjórnendum innan fyrirtækisins. Í mínu tilfelli voru forstjórinn og varaforstjórinn meðal þeirra sem sátu síðasta viðtalið.

Ekki er óalgengt að einhver af þessum viðtölum séu hópviðtöl.  Í hópviðtölum eru yfirleitt tveir eða þrír nemendur sem tala við einn eða fleiri starfsmenn fyrirtækisins. Þetta getur reynt ógurlega á mann því maður finnur sérstakan þrýsting, sérstaklega hjá mér þar sem mér fannst þeir sem fóru með mér í viðtalið miklu betri en ég í japönsku og koma með mun betri svör en ég. Í einu viðtali sem ég fór í hjá öðru fyrirtæki voru hinir tveir nemendurnir japanskir og ég kom að sjálfsögðu óundirbúinn svo ég þurfti að svara flestum spurningum með svörum sem ég hugsaði upp á staðnum. Að sjálfsögðu kolféll ég í því viðtali og hélt ekki áfram þar.

Fyrsta viðtalið mitt var einstaklingsviðtal (ég og tveir háttsettir aðilar innan mannauðsdeildarinnar),  annað viðtalið mitt var með öðrum nemanda úr mínum eigin skóla (nokkrum klukkustundum síðar skall stóri jarðskjálftinn á), lokaviðtalið mitt var svo með skiptinema úr öðrum skóla og enskuviðtalið, þar sem enskukunnátta mín var prófuð, var einstaklingsviðtal við bandarískan yfirmann einnar deildar fyrirtækisins.

Þegar síðasta viðtalinu lýkur er ekki óalgengt að fólk þurfi að bíða í nokkrar vikur eftir niðurstöðum. Það er heldur ekki óalgengt að fólk fái símtal morguninn eftir, eða næsta kvöld, með niðurstöðunum. Í mínu tilfelli var dagurinn ekki einu sinni liðinn – ég fór í viðtölin fyrir hádegi (fyrst lokaviðtalið með stjórnendum fyrirtækisins og svo enskuviðtal eftir það) og ég fékk svo símtal um eftirmiðdegið með niðurstöðum.

Í heildina sótti ég um hjá fimm fyrirtækjum, en eflaust hefði þeim fjölgað ef ég hefði ekki fengið atvinnutilboðið á miðvikudaginn. Eitt fyrirtæki hafnaði netumsókn, ég kolféll í prófi hjá öðru, ég féll eftir fyrsta viðtal hjá tveimur fyrirtækjum og komst svo í gegnum allt ferlið hjá því fimmta. Þess má geta að algengast er að fólk sæki um hjá 25-50 fyrirtækjum. Það eru til dæmi um fólk sem sækir um hjá meira en hundrað fyrirtækjum án árangurs.

Í stuttu máli er ferlið því svona:

Atvinnuleit í Japan er hreint helvíti – ég held ég hafi aldrei farið í gegnum neitt sem er eins erfitt og það er mikið sagt því ég sótti bara um hjá fimm fyrirtækjum, svo ég get vart ímyndað mér hvernig það er að sækja um hjá fleiri fyrirtækjum. Það er einfaldlega mun auðveldara að sækja um vinnu heima. Aftur á móti getur maður tryggt sér vinnu ár fram í tímann og slakað á síðasta árið ef manni tekst fljótlega að finna sér vinnu.

 

18/08/10

AMX.is

by @ 12:19. Filed under Muml og ruml

Ég held ég hafi bara aldrei á ævi minni lesið eins mikinn ruslvef og AMX.is er á minni ævi. Þetta er eins og þeir allra verstu úr stuttbuxnadeild Sjálfstæðisflokksins hafi ákveðið að búa til vefsíðu til að senda út skilaboð sín til umheimsins á milli stunda í menntó og grunndeildum háskólanna.

watch imax: hubble 3d film stream

Varð bara að segja hvað mér þykir þessi vefsíða hryllilega asnaleg.

that’s what i am download ipod
buy elephant white the film online
the eagle dvd
download pirates of the caribbean: dead man’s chest full lenght

25/06/10

Ný færsla

by @ 07:43. Filed under Muml og ruml

Það var kominn tími til að setja inn nýja færslu. Hér má sjá lista yfir það sem ég hef verið að gera undanfarið:

Læra

movie red riding hood on dvd
divx online

Ég er í Japan einmitt til þess að læra. Þyrfti samt að eyða meiri tíma í það, hef ekki verið sáttur við árangur minn á þessari önn hingað til.

Drekka

something borrowed download ipod

Það er enginn maður með mönnum nema maður drekki. Sem betur fer hefur verið nóg af partýum að fara í hingað til.

Dansa

buy futureworld movie online
no strings attached dvd rip download

Ég dansaði skoskan samkvæmisdans fyrir framan 1200 manns þann 11. júní síðastliðinn. Það heppnaðist vel, fyrir utan eitt óhapp, en einn dansfélagi minn rann á sleipu gólfinu en mér tókst að hífa hana upp aftur og halda áfram að dansa eins og ekkert hafi í skorist – og halda brosinu í leiðinni! Myndin með færslunni ætti að lýsa sér sjálf.

Ferðast

Búinn að fara í tvö tveggja daga ferðalög með klúbbnum mínum auk þess sem ég ferðaðist til Okayama til að hitta mína ástkæru Yuho í lok apríl.

Funda

how to download robin hood

Búinn að vera á fullu á fundum í tengslum við klúbbastarfsemina þar sem ég var ekki bara að dansa heldur einnig að hjálpa til við að skipuleggja allt saman og búa til bæklinga og fleira.

Taka þátt í sjálfboðaliðastarfi
Í byrjun annarinnar fékk ég styrk frá ónefndu fyrirtæki og í tengslum við það þarf ég að taka þátt í ýmis konar starfi. Ég fór í dagsferð út úr bænum til að skera niður bambus sem vex villtur í fjöllum landsins og skaðar sitt nánasta umhverfi.

Sofa
Ég væri líklega ekki með fulla fimm ef ég fengi ekki nægan svefn.

Spila Mario & Luigi: Superstar Saga
Ég er búinn að eyða um 15 klukkustundum í þennan leik undanfarnar vikur og verð að viðurkenna að mér finnst hann frábær. Ég er sjö árum eftir á en betra er seint en aldrei.

Þetta ætti svosem að lýsa því sem ég hef verið að gera undanfarið. Næst á dagskrá er meðal annars fyrirlestur um Jón Gnarr á japönsku, lokapróf auk þess sem ég er að flytja þann 10. ágúst næstkomandi.

buy water for elephants film on dvd
download movie salt
watch elephant white the movie online

21/05/10

Prufa

by @ 04:53. Filed under Muml og ruml

Málinu reddað. :)

drive angry 3d dvd download
2012 download full film
download the twilight
harry potter and the deathly hallows: part 1 dvds
where to watch the whole blazing saddles film
back to the future part 3 full movie online
burlesque the movie good quality
movie the mechanic on dvd

27/08/09

Sigmundur Ernir ætti að segja af sér

by @ 13:03. Filed under Muml og ruml

Sigmundur Ernir ætti að segja af sér eftir að hafa mætt á þing eftir að hafa fengið sér í glas. Það er ekki þjóðarþjóni sæmt að gera slíkt. Með þessu hefur hann misst traust kjósenda sinna - og ekki bætir þetta ímynd þeirra sem EKKI kusu hann á honum. порно башкирия

the shawshank redemption the movie to buy
12 angry men dvd rip

голова болит секс голова болит секс

paul full hd
download the blue valentine movie
full i am number four film high quality
watch star trek full film good quality
dvd how to train your dragon download
download legal divx no strings attached movie
that’s what i amonline
the a-team move

09/08/09

Enn á lífi

by @ 14:55. Filed under Muml og ruml

Þrátt fyrir að harður jarðskjálfti hafi riðið yfir Japan er ég enn á lífi. Ég er ansi langt frá upptökum skjálftans svo það er lítið að óttast. :P екатеринбугский клуб группового секса

where can i watch battle: los angeles?
download movie scott pilgrim vs. the world hd
download dvd movie fast five
hanna full hd
tangled download full film
blue valentine the movie to download
ferocious planet dvd download
priest dvd rip

02/08/09

Lögbann schmögschmann

by @ 03:11. Filed under Muml og ruml

Kaupþing getur kannski fengið lögbann á fjölmiðla…

ipod the human resources manager movie
the way back movie to buy
watch fast & furious 4 full movie high quality
salt movie download

En lögbann eður ei, ég ætla að halda þessum glærum inni á síðunni minni.

no strings attached movie to buy

Enda er tjáningarfrelsið dýrmætt.

the full source code movie
watch tenku no shiro rapyuta aka castle in the sky film in high quality
download the entire the hangover film
hereafter hq
секс без яичника
watch born of hope ful film

20/07/09

Íslenskt vatn selt dýrum dómum í Japönskum stórmarkaði

by @ 12:49. Filed under Muml og ruml

Í stórmarkaðnum Seiyu nálægt heimavistinni minni má finna Iceland Spring Water, íslenskt vatn sem er tappað á flöskur uppi í Heiðmörk, selt dýrum dómum. Ein hálfs lítra flaska kostar um 160 yen, eða 214 krónur.

Til samanburðar kostar ódýrasta tveggja lítra flaskan 97 yen, eða 129 krónur.

watch the silence of the lambs ful film
shaolin the movie

Sæll.

watch bedrooms online
the source code download full film
download just go with it full
the dark knight dvds
unforgiven stream
download the way back film score
watch full the adjustment bureau movie in hd

[powered by WordPress.]

Anti-rasismi

Get Firefox!

Um Vilhelm:

Síðustjórnun

  • Um Vilhelm
  • Flokkar:

    Eldri færslur:

    May 2012
    S M T W T F S
    « Jun    
     12345
    6789101112
    13141516171819
    20212223242526
    2728293031  

    No enemies had ever taken Ankh-Morpork. Well *technically* they had, quite often; the city welcomed free-spending barbarian invaders, but somehow the puzzled raiders found, after a few days, that they didn't own their horses any more, and within a couple of months they were just another minority group with its own graffiti and food shops.
    — Terry Pratchett

    Leita á síðunni:


    follow vilhelmsmari at http://twitter.com

    Leita á síðunni:

    Félagar

    Ýmislegt:

    Annað:

    20 queries. 0.686 seconds